.............................................................................................................................................
heim
| hafðu samband
Well, yes and no. Yes, I did say it, and no, I didn't not say it... ......................................
Tónleikar ..ég og Lára sys fórum á tónleika áðan...þar sem Vega er bara steinsnar frá heimili okkar þá ákváðum við bara að hjóla þangað [sem tók innan við mínútu að gera..híhí]..þegar við mættum á svæðið þá blasti við okkur eitt stórt unglingavandamál - það var eins og fólkið hefði verið búið að hanga þarna fyrir utan síðan í gær að drekka áfengi..úff..ég er svo fullorðin ;) ..ekkert mál með það..við fórum þarna inn og báðum dyraverðina kurteislega góða kvöldið...og fórum svo upp á efri hæðina í sætin - greinilega þar sem hinir "foreldrarnir" voru...við sátum fyrir framan tvær mömmur sem fylgdu dætrum sínum á þessa samkomu..gleði og hamingja þar..svo til að toppa þetta þá kom ungur drengur að mér stuttu seinna og spurði mig hvort ég gæti keypt áfengi fyrir hann! ..þá skyldi ég hvers vegna það var tómt við barinn...það hafði enginn aldur til þess að vera þar!!! ..jæja en það rættist nú heldur betur úr þessu öllu saman..horfðum þarna á tvær alveg stórgóðar hljómsveitir...The Sounds, frá Sverige, var að hita upp og svo stökk á svið hin stórgóða hljómsveit Panic! At The Disco...ég varð alls ekki fyrir vonbrigðum með þetta kvöld og dillaði mér óspart með tónlistinni...og að sjálfsögðu spiluðu þeir uppáhaldslagið mitt með þeim, þar sem þeir taka smá part úr The Sound Of Music - nettur snilli :D