.............................................................................................................................................
heim
| hafðu samband
Well, yes and no. Yes, I did say it, and no, I didn't not say it... ......................................
Toggi popp ..já hann Toggi, vinur Dóra og Mumma á móti, er búinn að gefa út breiðskífu..ég hef reyndar bara hitt kauða einu sinni, en í þetta eina skipti þá var hann einkar viðkunnalegur drengurinn :) ..en já áfram með smjörið..alveg frá fyrstu kynnum mínum við strákana þá hafa þeir alltaf talað svo fallega um hann Togga sinn...svo kom að þeim degi að ég fékk nú loksins að heyra eitthvað frá drengnum og ekki var það nú neitt baul skal ég segja ykkur...svo er hann núna barrasta orðinn landsþekktur kallinn og vitna ég í hvívetna í hann sem Togga "félaga minn" [hann man líklegast ekki einu sinni hvernig ég lít út - hvað þá hvað ég heiti..en það veit enginn..] ..en já, breiðskífan hans Togga heitir Puppy, gefin út af Sena, og mæli ég eindregið með henni...það sem ég hef heyrt er nett eyrnakonfekt..fáum eitt tóndæmi í boði Gumma Jóh...og þar sem við erum farin að ræða þann mæta mann þá er hann einmitt ofurmódelið sem prýðir koverið af þessu lagi og er lagið víst að sögn samið um hann sjálfan...hér er það...Sexy Beast