.............................................................................................................................................
heim
| hafðu samband
Well, yes and no. Yes, I did say it, and no, I didn't not say it... ......................................
Það er ekki á hverjum degi sem maður er yfir.. í dag var gleði og hamingja hjá mínum hóp í skólanum - í dag þurftu kennararnir í kúrsinum okkar að viðurkenna fyrir okkur að við hefðum haft rétt fyrir okkur allan tímann og þeir hefðu gert þó nokkuð stór mistök..já það gerist endrum og eins að þegar maður stendur fast á sínu að maður fái það ekki beint í fésið aftur hvað maður er vitlaus - stundum hefur maður nefninlega rétt fyrir sér, og þá er gaman :D
í öðrum fréttum þá eru lyklarnir að íbúðinni komnir á kippuna...Lára er reyndar ennþá að brjóta heilann um það hvernig hún eigi að koma hjólinu sínu inn og út úr bakgarðinum, en það kemur allt...svo verður líka spurning hvort það þurfi að taka Ross á það þegar koma þarf sófanum inn í íbúðina - "PIVET..PIVET..PIVEEEEEET...I don't think it´s gonna pivet anymore.." :D