.............................................................................................................................................
heim
| hafðu samband
Well, yes and no. Yes, I did say it, and no, I didn't not say it... ......................................
Sæl øll sømul....
dagurinn í dag hefur hreint verið alveg med ólíkindum góður!
...minn fór á internetið núna bara uppúr hádegi og haldiði að manni hafi ekki bara verið boðin íbúð á Amagerkollegi frá fyrsta des!! ..það er nú ekki alveg pottþétt - en ég vil halda að það séu þó nokkuð miklar líkur á því!! brjáluð gleði :)
svo ekki nóg með það þá voru lausnirnar úr verkefninu sem ég þurfti að gera ein að koma á netið...og getiði bara...mín var langhæst med 95% á meðan allir hinir voru í svona 80% og neðar!!! hahahahaaa - sá hlær best sem síðast hlær!!! ...gott á þau að hafa ekki viljað vera med mér í hóp!!
..svo vil ég óska Dagnýju Rósu frænku - ein af mínum uppáhalds :) - til hamingju með afmælið á þriðjudaginn!! ..mmmm ég get alveg séð fyrir mér kræsingarnar....
..fór á Kashmir tónleikana í fyrradag...þessi hljómsveit er alveg skelfilega góð!! ...mæli með að fólk kaupi sér nýja diskinn!!
..og ef ég var ekki búin að nefna það...heimferð er áætluð þann 21.des og verið yfir jólin..brottfør þann 29.des...tel niður dagana :)